|
Velkomin á heimasíðuna okkar ! Dísa,Emil,Benóný Ísak og dýrin. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
24.07.2026 10:31Heyskapur byrjar aftur 23 júlíJæja þá er loksins aftur útlit fyrir smá þurrk og það var stokkið á það og farið að slá í Fögruhlíð og Siggi að slá hjá sér inn í Tungu. Emil og Kristinn slóu í Fögruhlíð og það var nú eitthvað bras til að byrja með eins og getur oft gerst þegar maður er með gömul tæki. Traktorinn hans Kidda var eitthvað stríða honum og það brotnaði hosuklemma og það þurfti að panta nýja en hann gat þá verið á rauða traktornum í staðinn svo var blái traktorinn hjá Emil líka að stríða þeim og það slitnaði glussaslanga á honum svo Bói tók hana fyrir Emil og lét laga hana í vélsmiðjunni en svo gekk þetta vel eftir það. Þeir kláruðu að slá og svo fór Bói og Emil í að laga veginn niður á túnið í Kötluholti . Maja talaði við Erin og Richard sem eiga Kötluholt og það var allt í góðu að við myndum fá að taka rauðskriðmöl og fylla upp í veginn svo það væri þæginlegra að koma tækjunum niður á tún og þá sérstaklega þegar við þurfum að keyra rúllurnar af túninu og inn í Tungu þegar búið er að heyja. Kiddi rakaði með túninu á meðan og það sem var búið að fara aðeins út í skurðina sem var búið að slá. Ætlunin er svo að snúa heyjinu í dag og vonandi er þá hægt að fara binda eitthvað seinnipartinn í dag.
23.07.2026 21:11Kindur í júlí og byrjað að heyja
20.07.2026 09:32Buggybílaferð með Glacier ParadiseVið eigum svo frábæra vini sem buðu okkur ásamt öðrum vinum okkar Irmu og Nonna og Önnu og Vigfúsi að koma í skemmtiferð út á Arnarstapa . Það eru Kolfinna og Vignir sem reka Glacier Paradise og þau eru með jöklaferðir upp á Snæfellsjökul og svo Buggybílaferðir og þau eru með bústaði líka sem þau selja út gistingar. Við fórum til þeirra og fórum í buggybílaferð sem var alveg æðisleg upplifun svo fórum við út að borða á Hótel Arnarstapa og enduðum svo kvöldið í heita pottinum og vorum upp í bústað sem þau eiga. Við fengum æðislegt veður og það var sól og blíða.
12.07.2026 09:01Júní til Júlí Salou ferðJæja það er aldeilis kominn tími til að fara blogga. Við fórum í viðtal hjá Bændablaðinu áður en við fórum suður til að fara í sólarlandaferð til Salou og það var mikil heiður að fá svona flott viðtal og mjög fallegar myndir sem voru teknar sérstaklega sem var á forsíðu blaðsins með stelpurnar okkar með kindina Hildi sem við getum alltaf labbað að úti og hún kemur og vill fá klapp og klór.
Við fórum svo til Rvk sama dag um kvöldið eftir viðtalið. Við vorum svo 17 júní með Magga bróðir Rut og Marra Má og kíktum í miðbæ Garðarbæjar á litla hátíð sem var þar svo fór Ronja með Magga og Rut heim og borðaði með þeim og við kíktum út að borða í tilefni þess að ég átti afmæli 17 júní. Daginn eftir fóru stelpurnar í tannréttingar tíma og svo gistum við aðra nótt og flugum svo út um morguninn til Salou þann 19 júní.
18.06.2026 22:59Sjómannadagur og fleira
16.06.2026 02:41Ferming hjá Freyju Naómí 24 maíFreyja Naómí okkar fermdist á Hvítasunnu 24 maí í Ólafsvíkurkirkju og svo var veislan hennar á Skerrestaurant veitingarstaðnum í Ólafsvík. Við vorum alveg í skýjunum með allt saman þetta var alveg stórglæsilegt allt var fullkomið staðurinn .starfsfólkið og maturinn alveg einstakur það voru allir svo ánægðir og þetta var alveg frábær dagur með vinum og ættingjum í blíðskapar veðri. Freyja fór í prufugreiðslu inn í Grundarfirði hjá Maríu á Silfur hár og föðrun fyrr í vikunni og þá tók ég fermingarmyndirnar af henni svo við vorum búnar með myndatökuna fyrir ferminguna mjög þæginlegt. Hún fékk sér svo neglur hjá Margréti í Ólafsvík og fór svo í smá snyrtingu á augnabrúnum hjá Gerðu á Musku snyrtistofu Ólafsvík. Hún fékk kjólinn sem hún var í hjá Júnik í kringlunni og skóna pantaði ég á boozt.
12.06.2026 07:34Sauðburður 2026Jæja þá er loksins komið að því að blogga um sauðburðinn en mikið var að gera í allann maí bæði sauðburður og svo ferming hjá Freyju Naómí dóttur okkar svo ég ákvað að bíða bara róleg og velja góðan tíma eftir allt og setjast niður og blogga.
01.05.2026 08:02Mandla gemlingur og klippt klaufar á gemlingunum.
29.04.2026 17:52Sauðburður hafinn 29 aprílÖrk tvævettla bar í morgun og er að bera í fyrsta sinn og var alveg súper mamma strax og allt sneri rétt og hún bar tveim gimbrum og einum hrút undan Prímusi.
28.04.2026 17:26Styttist í sauðburð og hrútunum sleppt út á tún
Hér eru hrútarnir komnir út 21 apríl.
09.04.2026 15:09Gleðilega páska
09.04.2026 14:06Afmæli Emils 1 apríl og sundferðir
09.04.2026 12:08Ýmislegt í Mars og afmæli Emblu Marínu
18.03.2026 23:13Seinni rúningur og fyrsta sprauta við lambablóðsóttÞann 5 mars kom Jökull til okkar og tók af snoðið og það gekk svakalega vel hann gerir þetta svo svakalega vel og er svo ótrúlega fljótur. Ég tók mér frí í vinnunni því hann mætti til okkar strax um morguninn og hann kláraði á hádegi og við buðum honum í hádegismat og ég fór og sótti fyrir okkur öll hamborgaratilboð á sjoppunni hjá Júnu.
18.03.2026 20:32Vetrafrí 26-1mars
Flettingar í dag: 263 Gestir í dag: 1 Flettingar í gær: 331 Gestir í gær: 1 Samtals flettingar: 3485985 Samtals gestir: 93695 Tölur uppfærðar: 28.7.2026 04:41:15 |
Eldra efni
Um okkur Nafn: Dísa,Emil,Benóný Ísak, Embla Marína og Freyja NaómFarsími: 8959669,8419069Tölvupóstfang: benonyisak@gmail.comMSN netfang: Disa_99@hotmail.comAfmælisdagur: 17 júní 1982,1 apríl 1985, 19 ágúst 2009. 28 MarsHeimilisfang: Stekkjarholt 6Staðsetning: 355 ÓlafsvíkHeimasími: 4361442Um: Sjúkleg áhugamanneskja um sauðfjárrækt og allt sem henni tengist. Mikið um rollur á þessari síðu og örlítið um hesta og hænur og allskyns sveitalíf. Svo má ekki gleyma fjölskyldunni því það er auðvitað reglulega sett myndir og blogg af börnunum og daglegu lífi okkar.Tenglar
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
© 2026 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is